Quantcast
Channel: Kaos í lífi KaosPilot
Viewing all articles
Browse latest Browse all 25

Ég er ekki hætt

$
0
0
Ég er nú ekki alveg hætt að blogga þó svo að ég hafi ekki látið til mín taka í góða stund núna. Það er bara allt á haus. Þrjú störf (verða einu færri eftir klukkan þrjú í dag) og íbúðarleit. Mér finnst ég vera að drukkna- vill einhver hjálpa mér upp?Nei, nei, þetta gengur allt saman. Annars er ekki mikið nýtt undir sólinni. Ég skellti mér á Airwaves með Sunnu sætu Dís og það var mjög gaman þó svo að ég hafi nú ekki séð margt sem heillaði mig upp úr skónum. Og svo biðum við soldið mikið í röð og það er ekki gaman þegar að maður hefur greitt 6000 krónur fyrir miðann. Annað í fréttum er það að ég ætla til Noregs í desember að heimsækja bekkjarfélaga mína þar. Við ætlum á jólahlaðborð og eitthvað djamm. Ákvað bara að skella mér enda vil ég umfram allt halda tengslum við þá frábæru vini. Finnst ég oft svolítið einmana hérna uppi á norðurhjara veraldar. Og þá er bara eitt enn í fréttum að þessu sinni; haldiði ekki bara að hún Mæsa sé hætt að naga neglurnar og sé komin með þessar fínu, löngu og glansandi neglur. Mér finnst ég náttla vera svakalega skvísa og flíka þeim eins og ég ætti lífið að leysa. Ég læt þetta nægja í bili og sendi góða strauma út og inn og allt um kring.

Viewing all articles
Browse latest Browse all 25